July 19, 2007

síðustu vikur

Hvað hefur upplifast síðustu vikur?

Fyrst er að nefna......mastersgráða!! :D
Og hvað gerir maður þegar einn master er kominn? Tekur nokkra daga frí og byrjar svo nottla á öðrum master ;o)

Frí - hitt og þetta brallað og skoðað. Meðal annars alveg yndislega, pínuponsulítill bær.....vorum ca. einu ferðamennirnir þarna. Vorum í fríi lengst úti í sveit í rigningu, snjókomu og skítakulda. Vinsælustu atvikin voru að sjá skilti sem á stóð "open fire", þeas veitingastaður með arin þar sem var hægt að hlýja sér. Og jújú, drukkið ótæpilegt magn af kaffi og heitu kakói.

Tengt lið númer tvö....þá hefur verið óvenju kalt í Melbourne. Þriðjudagurinn var til dæmis kaldasti dagurinn í einhver 10 ár (og já, þetta var sko íííískalt!). Svo hefur rignt á hverjum einasta degi í einhverjar vikur, varla stytt upp milli skúranna. Eftir áralangan þurrk og vatnsskort, kemur öll rigningin í einu - það hreinlega styttir ekki upp. Einsgott að eiga regnhlíf ;o)

6 Comments:

Anonymous Anonymous said...

til hamingju med masterinn, gangi tér vel med thann næsta;)

1:04 PM  
Anonymous Anonymous said...

dugleg stelpa til hamingju ... og mér finnst pínu gott að heyra að það RIGNI á fleiri stöðum en í London!!! Orðin frekar þreytt á þessari bleytu :/

3:53 PM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju!!
Hvað kallast master númer tvö á íslensku eða hvernig er hægt að útskýra hann? Fólk hefur spurt mig og ég hef held ég ekki réttu orðin!!! Er þetta mannauðsstjórnun? Eða...?

2:33 PM  
Blogger Þórunn said...

Til hamingju með masterinn Katrín! Gangi þér voða vel með þann næsta.

9:33 AM  
Blogger Katrin said...

Takk takk fyrir hamingjuóskirnar :o)

9:16 AM  
Anonymous Anonymous said...

Til lukku með masterinn skvísa!!! Rosa flott hjá þér. Þú sverð þig í ættina að safna mastersgráðum ;o)

11:55 AM  

Post a Comment

<< Home

mortgage brokers
mortgage brokers Counter