November 11, 2006

brrrrr [kalt].....veðurspáin

Kikkaði á mbl.is og þar stóð þetta:

"Veðurhorfur næsta sólarhringinn
Viðvörun: búist er við stormi fyrir norðan og austan land.
Spá: Hvöss norðan- og norðvestanátt með snjókomu eða éljum N- og A-lands, en lægir smám saman og léttir til í dag, fyrst um vestanvert landið. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum í dag. Vaxandi SA átt og þykknar upp vestantil í kvöld. "

En girnilegt :S

Og áfram heldur góðgætið...

"Veðurhorfur næstu daga
Suðaustanslagviðri S- og V-lands með slyddu og síðar rigningu á sunnudag en snjókomu NA-lands. Hlýnar í veðri. Norðaustan hvassviðri á mánudag og þriðjudag með snjókomu á norðanverðu landinu. Kólandi. Áframhaldandi norðanátt með éljum á miðvikudag og fimmtudag og frost um allt land. "

Það er ekki laust við að það sé kominn nettur kvíði í kroppinn fyrir því að fara í þennan kuldabola sem er í henni Reykjavík.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

thíhí mér finnst þetta veður rosa kósí, ég dýrka þetta... myrkur og hávaðarok og kuldi... og maður nýtur þess svo svakalega að kúra heima undir sæng... mmm... og dúðar sig í ullarpeysu og lopasokka og með trefil og er með rautt nef :) dýrk dýrk og jólalegt!

8:01 AM  
Blogger Rannveig Magnúsdóttir said...

Til lukku með að vera búin í prófunum :) Það hlýtur að vera mikill léttir, kemurðu heim um jólin? knús, Rannveig

3:09 PM  
Blogger Katrin said...

hehe, reyndar alveg rétt, mjög kósí að vera innandyra í kuldabolaveðri :o)

takki takk, jebb, frábært að vera búin með prófin! :o) og já, kem til Íslands um jólin. kem svona rétt mátulega í jólasteikina, lendi að kvöldi 18. des.

8:12 AM  

Post a Comment

<< Home

mortgage brokers
mortgage brokers Counter