May 25, 2006

eldur á bókasafninu

Bókasafnið í skólanum er, tjahh...hvaða lýsingarorð notar maður um ca 700.000 bækur og heilan helling af öðru efni? allavega...

Fyrir stuttu hljómaði brunaviðvörunarkerfið á bókasafninu, allir beðnir að yfirgefa svæðið. Eins og venjulega heldur maður að þetta sé bara plat eða æfing, en það var víst eldur á bókasafninu.

Á sekúndubroti skoppuðu atburðir úr sögutímum upp í hugann, bruninn á bókasafninu í Alexandríu forðum daga og handritabruninn í Kaupmannahöfn hjá honum Árna Magnússyni.

Öfugt við atburði í Alexandríu og hjá honum Árna, var þessi eldur slökktur fljótlega og olli litlu tjóni.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home

mortgage brokers
mortgage brokers Counter