February 29, 2008

Melbourne á ný

Komin til Melbourne á ný - með kærastanum. Fengum yndislega íbúð rétt hjá skólanum, ferlega þægilegt :o)
Hingað til hefur tíminn farið í hinar ýmsustu útréttingar, til dæmis í bananabiðröðina hjá útlendingaskrifstofunni, fjórar (!) ferðir í IKEA og fleira og fleira.
Fórum á næturmarkað fyrr í vikunni og gæddum okkur þar á krókodíla og strútaborgurum sem voru barasta ansi góðir. Desertinn var svo hollenskar pönnukökur, mmmmm.
Í dag er formlega síðasti dagur sumarsins en þó hljómar veðurspáin upp á eitthvað um 20 gráður fyrir næstu daga. Það kalla ég fínasta haust :o)

1 Comments:

Blogger Rannveig Magnúsdóttir said...

Hæhó, mikið er ég fegin að þið fenguð íbúð... Velkomin aftur út, ég öfunda ykkur hriiiiikalega mikið :) knúsí, Rannveig

5:30 PM  

Post a Comment

<< Home

mortgage brokers
mortgage brokers Counter